Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 72.900 en voru 77.600 í sama mánuði árið 2008 samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Gistinóttum fækkaði þó einungis á Höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi en fjölgaði í öðrum landshlutum.

Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á Austurlandi, úr 1.600 í 800 eða um 50%. Gistinóttum fækkaði einnig á Höfuðborgarsvæðinu úr 61.000 í 54.000 eða um rúm 11% miðað við febrúar 2008.

Í frétt Hagstofunnar kemur fram að gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Norðurlandi, úr 3.500 í 4.500 eða um tæp 29%  miðað við febrúar 2008. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum úr 6.200 í 7.700 eða rúm 24% og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um rúm 10% miðað við febrúar 2008, úr 5.200 í 5.800.

Fækkun gistinátta á hótelum í febrúar má aðallega rekja til Íslendinga en gistinóttum þeirra fækkaði um 17% á meðan og gistinóttum útlendinga fækkaði um rúmt 1% miðað við febrúar 2008.