Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru rúmlega 50.700 en voru 40.400 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 10.300 nætur eða 26% að því er kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Norðurlandi þar sem fjöldinn stóð í stað. Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur nánast þrefölduðust, fóru úr 700 í 2.000 milli ára.

Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 27%, úr 2.100 í 2.700. Á höfuðborgarsvæðinu nam fjölgunin 25% í janúar, en fjöldi gistinátta fór úr 31.400 í 39.100 milli ára. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum úr 4.500 í 5.200, eða um 15%. Á Norðurlandi stóð fjöldi gistinátta í janúar í stað milli ára og var 1.700.

Gistinóttum útlendinga fjölgaði um 34% og Íslendinga um 9%. Útlendingar vega þó þyngra þar sem gistinætur þeirra eru tæp 72% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í janúar.

Gistirými á hótelum í janúarmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.346 í 3.762, 12% aukning og fjöldi rúma úr 6.839 í 7.648, 12% aukning. Hótel sem opin voru í janúar síðastliðnum voru 70 en 65 í sama mánuði árið 2006.