Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 102.100 en voru 87.200 í sama mánuði árið 2005, sem er 17% aukning. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur fóru úr 3.400 í 4.200 milli ára, 24% aukning.

Í frétt Hagstofunnar kemur fram að á höfuðborgarsvæðinu nam fjölgunin rúmum 21%, er gistinóttum fjölgaði um tæp 13 þúsund, 59.700 í 72.400. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum úr 8.000 í 8.700, 9% aukning. Á Suðurlandi nam aukningin 4% en gistináttafjöldinn þar fór úr 8.700 í 9.100. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum úr 7.400 í 7.700, eða um 3%.

Fjölgun gistinátta á hótelum í maí árið 2006 má að öllu leyti rekja til útlendinga. Þeim fjölgaði um 23% en gistinóttum Íslendingum fækkaði um 2,5%.

Gistirými á hótelum í maímánuði jókst milli ára, en hótel sem opin voru í maí síðastliðnum eru tveimur fleiri en árið á undan, úr 72 í 74. Fjöldi herbergja fór úr 3.596 í 3.725, 4% aukning og fjöldi rúma úr 7.241 í 7.528, 4% aukning segir í frétt Hagstofunnar.