Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 77.500 en voru 88.100 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fækkaði því um rúm 12% milli ára. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Hlutfallslega fækkaði  gistinóttum mest á Austurlandi, úr 2.700 í 2.100. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum úr 7.600 í 5.800 og á Suðurlandi úr 9.200 í 7.300.

Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 64.300 í 56.900 eða um tæp 12%. Gistinóttum fjölgaði í mars á Norðurlandi um rúm 16% á milli ára, úr 4.600 í 5.400.

Gistinóttum á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins fjölgaði um rúm 3% milli ára

Gistinætur á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins voru 211.778 en voru 204.755 á sama tímabili árið 2007.

Fjölgun varð á Norðurlandi um rúm 10% og  á höfuðborgarsvæðinu um rúm 9% milli ára.

Fækkun varð á öllum öðrum landsvæðum mest  á Austurlandi eða 24%, á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um rúmlega 18% og á Suðurlandi ríflega 15%.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins nær bæði til Íslendinga, 7% og útlendinga, 2%.