Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 108.300 en voru 97.900 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 10.400 nætur eða tæplega 11%. Gistinóttum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða.

Í frétt á vef Hagstofu Íslands segir að hlutfallslega hafi fjölgunin verið mest á höfuðborgarsvæðinu þar nam hún rúmum 16%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 71.500 í 83.000 milli ára.

Á Norðurlandi var aukning gistinátta um 3%, þar fóru gistinætur úr 6.300 í 6.400. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða var fjölgun gistinátta um 4%, þar fjölgaði gistinóttum úr 7.100 í 7.400.

Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í október milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækkaði úr 3.600 í 2.100, 41%. Á Suðurlandi var lítil breyting milli ára, eða um 1% samdráttur.

Fjölgun gistinátta á hótelum í október má bæði rekja til Íslendinga 24% og útlendinga 6%, samkvæmt því sem segir á vef Hagstofunnar.