Gistinætur á hótelum í janúar voru 161.400 sem er 35% aukning miðað við janúar 2014. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 87% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 41% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði hins vegar um 3%.

Flestar gistinætur á hótelum í janúar voru á höfuðborgarsvæðinu eða 127.500 sem er 31% aukning miðað við janúar 2014. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 15.900.

Erlendir gestir með flestar gistinætur í janúar voru; Bretar 59.700, Bandaríkjamenn með 25.500, og Þjóðverjar með 7.700 gistinætur.