Gistinætur á hótelum voru 1.786.000 í fyrra samanborið við 1.486.100 árið 2011. Þetta er 20% aukning á milli ára. Þar af fjölgaði gistinóttum erlendra gesta um 22% á milli ára en Íslendinga um 14%.
Í desember í fyrra var fjöldi gistinátta á hótelum 88.700 samanborið við 69.300 ári áður en það er 28% aukning á frá í desember árið 2011, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar . Gistinætur erlendra gesta voru um 78% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum sem er 30% fjölgun á milli ára. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 21% á milli ára.