Gistinóttum á hótelum í október fjölgaði um 4,9% miðað við sama mánuð í fyrra; voru 82.300 nú 78.500 í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 10%, þar fjölgaði gistinóttum um tæpar 5.600 nætur milli ára, úr 56.100 í 61.700. Á Austurlandi voru gistinætur í október 2.650 en voru 2.060 árið 2003 sem er um 29% aukning milli ára.

Á Suðurlandi stóð fjöldi gistinátta nánast í stað milli ára (-0,4%). Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði hinsvegar gistinóttum á hótelum í október um tæp 12%, úr 5.680 í 5.020. Á Norðurlandi varð einnig samdráttur, en gistináttafjöldinn fór úr 5.750 í 4.130 og fækkaði þar með um rúm 28%.

Ef tölur eru skoðaðar fyrir landið í heild má sjá að gistinóttum útlendinga fjölgaði um tæp 11% meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um tæp 10%, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Tvöfald fleiri gistinætur útlendinga nú en 1997

Þegar gistinætur á hótelum í októbermánuði eru skoðaðar árið 2004 miðað við árið 1997 má sjá að gistináttafjöldi útlendinga hefur rúmlega tvöfaldast á tímabilinu, fór úr 30.400 í 62.900. Gistinætur Íslendinga eru hinsvegar aðeins 1.000 fleiri í október árið 2004 en árið 1997.

Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.