Gistinætur á hótelum í ágúst voru 287.500 sem er 11% aukning miðað við ágúst 2013. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 91% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum og fjölgaði þeim um 12% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 4%. Yfir tólf mánaða tímabil hefur fjöldi gistinátta aukist um 13%.

Flestar gistinætur voru á höfuðborgarsvæðinu, eða um 157.800 sem er 3% aukning miðað við ágúst 2013. Næst flestar gistinætur voru á Suðurlandi eða um 49.900 og er aukningin þar um 37% á gistinóttum milli ára fyrir ágúst. Erlendir gestir með flestar gistinætur í ágúst voru; Þjóðverjar með rúmlega 49.000 gistinætur, Bandaríkjamenn um 44.600 og Bretar um 22.600.