Hótelherbergi, Hótel Klettur
Hótelherbergi, Hótel Klettur
© vb.is (vb.is)
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 181.000 samanborið við 157.000 í júní 2010. Gistinóttum fjölgar því um rúm 15% milli ára. Gistinætur erlendra gesta voru um 85% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í júní og fjölgaði gistinóttum þeirra um 11% frá fyrra ári. Mikil aukning var á gistinóttum Íslendinga í júní, gistinætur voru ríflega 27 þúsund samanborið við 17.700 í júní 2010 og fjölgar því um tæp 53% á milli ára af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Á höfðuborgarsvæðinu voru 116.480 gistinætur í júní sem er 18% aukning frá fyrra ári. Á Suðurlandi voru 25.340 gistinætur júní sem er 19% fjölgun samanborið við júní 2010. Gistinætur á  Suðurnesjum voru 7.470 í júní og fjölgaði um 15% frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru gistinætur 16.980 í júní sem er 13% aukning samanborið við júní 2010. Á Austurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára eða um 7.900. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum á hótelum úr 7.400 í 7.100 eða um 4% samanborið við júní 2010.

Gistinætur fyrstu sex mánuði ársins voru 644.700 en voru 578.700 á sama tímabili árið 2010. Gistinóttum fjölgaði milli ára á Suðurnesjum um 20%, á höfuðborgarsvæðinu um 14%, á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða um 9%, á Suðurlandi um 7% og á Austurlandi um tæp 4%. Gistinóttum á Norðurlandi fækkaði hins vegar um 4% frá fyrra ári.

Fyrstu sex mánuði ársins hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um tæp 11% og gistinóttum Íslendinga um 15%.