Gistinætur á hótelum í júní voru 357.400 sem er 25% aukning miðað við júní 2015. Þetta kemur fram á veg Hagstofu Íslands. Gistinætur erlendra gesta voru 93% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 27% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 3%.

Flestar gistinætur á hótelum í júní voru á höfuðborgarsvæðinu eða 206.400 sem er 29% aukning miðað við júní 2015. Um 58% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 53.300. Erlendir gestir með flestar gistinætur í júní voru: Bandaríkjamenn með 90.700, Þjóðverjar með 62.100 og Bretar með 36.800 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2015 til júní 2016 voru gistinætur á hótelum 3.222.300 sem er 28% aukning miðað við sama tímabil árið áður.