GIstinætur á hótelum voru 90.300 í janúar síðastliðnum. Þetta er 25% aukning á milli ára, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar . Gistinætur erlendra gesta voru um 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum og fjölgaði þeim um 28% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 13% á sama tíma.

Flestir gistu á höfuðborgarsvæðinu í janúar eða 73.600 gistinætur á hótelum í janúarmánuði. Það er 23% aukning á milli ára. Gistinóttum fjölgaði líka umtalsvert á Vesturlandi og Vestfjörðum. Það gistu 2.100 í janúar og er það meira en 100% aukning á milli ára. Á Norðurlandi voru 3.800 gistinætur í janúar og fjölgaði um 55% frá því í fyrra en á Austurlandi voru 1.300 gistinætur og fjölgaði um 58%. Á Suðurnesjum voru um 4.400 gistinætur í janúar, en það er 25% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á Suðurlandi voru gistinætur tæplega 5.200 sem er álíka mikið og í janúar í fyrra.