Gistinætur á hótelum í apríl voru 227 þúsund sem er 29% aukning ef miðað er við apríl 2015. Gistinætur erlendra gesta voru 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum. Þeim fjölgaði um 30% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 24%.

Flestar gistinætur á hótelum í apríl voru á höfuðborgarsvæðinu - 154 þúsund, sem er 68% allra gistinátta. Það er 25% aukning miðað við apríl 2015. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 29.700.

Erlendir gestir með flestar gistinætur í apríl voru Bandaríkjamenn með 50 þúsund gistinætur, Bretar með 45 þúsund nætur og Þjóðverjar með 16 þúsund nætur.

Á tólf mánaða tímabili frá maí 2015 til apríl 2016 voru gistinætur á hótelum 3.095.600 sem er 27% aukning miðað við sama tímabil árið áður. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu .