Gistinætur á hótelum í desember voru 133.300 sem er 14% aukning miðað við desember 2013. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 84% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 14% frá sama tíma árið 2013 á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 12%. Gistinóttum á hótelum árið 2014 fjölgaði um 13% frá fyrra ári.

Flestar gistinætur á hótelum í desember voru á höfuðborgarsvæðinu eða 108.800 sem er 17% aukning miðað við desember 2013. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 11.200.

Erlendir gestir með flestar gistinætur í desember voru; Bretar 47.700, Bandaríkjamenn með 22.400, og Þjóðverjar með tæplega 5.900 gistinætur.