Gistinætur á hótelum í september voru 199.300 sem er 19% aukning miðað við september 2013. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 26% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 5%. Yfir tólf mánaða tímabil hefur fjöldi gistinátta aukist um 14%.

Flestar gistinætur voru á höfuðborgarsvæðinu um 125.100 sem er 15% aukning miðað við september 2013. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 27.600 og hefur gistinóttum á Suðurlandi fjölgað um 29% samanborið við september 2013.

Erlendir gestir með flestar gistinætur í september voru Bandaríkjamenn með rúmlega 37.700, Bretar 21.300 og Þjóðverjar með rúmlega 19.000 gistinætur.