Gistinætur á hótelum í mars voru 216.900 sem er 14% aukning miðað við mars 2014. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 86% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 19% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 8% milli ára.

Flestar gistinætur á hótelum í mars voru á höfuðborgarsvæðinu eða 156.700 sem er 8% aukning miðað við mars 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 31.000.

Á tólf mánaða tímabili apríl 2014 til mars 2015 voru gistinætur á hótelum 2.409.700 sem er fjölgun um 14% miðað við sama tímabil ári fyrr.