Gistinætur á hótelum í febrúar voru 194.800 sem er 21% aukning miðað við febrúar 2014. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 87% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 25% frá sama tíma í fyrra. Fjöldi gistinátta Íslendinga var svipaður milli ára.

Flestar gistinætur á hótelum í febrúar voru á höfuðborgarsvæðinu eða 145.200 sem er 18% aukning miðað við febrúar 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 25.100.

Af erlendum gestum voru Bretar með flestar gistinætur í febrúar, 76.200, því næst Bandaríkjamenn með 30.500 og loks Þjóðverjar með 13.400 gistinætur.