Heildarfjöldi seldra gistinátta á landinu í fyrra var rúmar 3,7 milljónir sem er aukning um 15,1% frá árinu 2011, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Gistinætur erlendra ríkisborgara voru 77% af heildarfjölda gistinátta sem er 18% aukning frá árinu 2011. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6% milli ára.

Eins og undanfarin ár gistu Þjóðverjar hér flestar nætur, þá Bretar og svo Bandaríkjamenn. Gistinóttum Kínverja fjölgaði hlutfallslega mest í samanburði við árið 2011 eða um 72%.

Flestar gistinætur voru á hótelum og gistiheimilum eða 72%, á tjaldsvæðum um 14% og um 14% á öðrum tegundum gististaða. Gistinóttum fjölgaði á öllum tegundum gististaða nema svefnpokagististöðum og í skálum í óbyggðum. Þá fjölgaði gistinóttum á öllum landsvæðum, hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu, Austurlandi og Vestfjörðum.