Óvíst er hvort Nýi Landsbankinn geti greitt af 280 milljarða króna skuldabréfi sem bankinn gaf út til gamla Landsbankans í tengslum við uppgjör þeirra á milli.

Morgunblaðið greinir frá í dag. Samkvæmt heimildum blaðsins komu fulltrúar NBI á fund skilanefndar gamla bankans í vikunni til að vara við því að hætta væri á að greiðsluflæði gjaldeyris inn í NBI stæði ekki fyllilega undir afborgunum af skuldabréfinu. Skuldabréfið á allt að greiðast í erlendum gjaldeyri, dollurum, pundum og evrum.

NBI vill breyta ákvæðum bréfsins þannig að hluta þess megi greiða í íslenskum krónum. Upphæðin sem NBI vill greiða í krónum hleypur á tugum milljarða, að því er segir í Morgunblaðinu.

Nokkrar leiðir færar

Skuldabréfið er til tíu ára og greiðast aðeins vextir fyrstu fimm árin. Fari svo að gjaldeyrisflæði inn í NBI standi ekki undir greiðslum til gamla bankans eru nokkrar leiðir færar. Ríkissjóður gæti hlaupið undir bakka með frekari innspýtingu fjár, NBI gæti keypt gjaldeyri af Seðlabankanum til að greiða af láninu og hægt væri að semja á ný um greiðsluskilmála þannig að hluta af láninu megi greiða í lánum.

Í frétt Morgunblaðsins er bent á að skuldabréfið er um fjórðungur eigna gamla Landsbankans og mun hafa umtalsverð áhrif á efnahagsreikning þrotabúsins ef greiðslur frá NBI tefjast eða verða í krónum.