Félögin Capacent Glacier og systurfyrirtæki þess Glacier Partners í Bandaríkjunum hafa aldrei stundað gjaldeyrisviðskipti og eru á engan hátt tengd fyrirtækinu Glacier Capital Partners. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum sem send er út vegna fréttar Viðskiptablaðsins fyrr í dag um að Glacier Capital Partners sé eitt þeirra félaga sem eru til rannsóknar vegna gjaldeyrisbrasks. Svo virðist sem félögunum hafi verið ruglað saman.

Capacent Glacier og Glacier Partners sérhæfa sig í almennri fyrirtækjaráðgjöf á Íslandi sem og alþjóðlega á sviði sjávarútvegs og jarðhita. Í tilkynningu frá þeim er tekið fram að þau tengjast ekki Glacier Capital Partners.