Arion banki hefur metið dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og möguleg áhrif á eigið fé bankans. Í fréttatilkynningu frá bankanum kemur fram að ef íbúðalán bankans verða dæmd ólögmæt þá mun það hafa neikvæð áhrif á eigið fé bankans en þó ekki að því marki að það stefni efnahag bankans í hættu. Í þessu sambandi má nefna að verði öll lán í erlendum myntum til einstaklinga dæmd ólögleg, þá lækkar nafnvirði lánanna verulega.

Áhrifin á Arion banka yrðu ekki meiri en svo að bankinn stæðist áfram lögbundnar kröfur um eigið fé. Eiginfjárhlutfall bankans er sterkt og yfir ítrustu kröfum FME. Arion banki tekur fram í fréttatilkynningunni að fái greiðendur erlendra lána sér dæmdan betri rétt í Hæstarétti, missa þeir ekki þann rétt þó þeir hafi skuldbreytt lánum sínum yfir í íslenskar krónur.