Meiri stöðugleiki einkenndi gjaldeyrismarkaðinn á síðasta ári heldur en árin þar á undan. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Seðlabanka Íslands á gjaldeyrismarkaði og breytingum á gjaldeyrisforða á liðnu ári, sem bankinn gerir grein fyrir í upphafi hvers árs.

Þar kemur fram að gengi krónunnar hafi hækkað um tæplega 2% yfir árið miðað við 11% hækkun 2013, velta hafi aukist umtalsvert og verulegt gjaldeyrisinnstreymi hafi orðið til þess að Seðlabankinn keypti meira af gjaldeyri á millibankamarkaði en áður.

Hlutdeild bankans í heildarveltu á markaðnum nam um 43% samanborið við um 12% árið áður en heildarvelta jókst um rúmlega 60% milli ára.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 42,5 milljarða króna á árinu og var 530 milljarðar króna í árslok 2014. Í lok árs 2014 var gjaldeyrisforði að frádregnum skuldum Seðlabankans og ríkissjóðs í erlendri mynt jákvæður um 53 milljarða króna.

Hægt er að lesa nánar um málið í frétt Seðlabankans .