Vergur gjaldeyrisforði Seðlabankans nam um 531,8 milljörðum króna í lok janúar og lækkaði um 7,9 milljarða milli mánaða, að því er kemur fram á heimasíðu bankans.

Hreinn gjaldeyrisforði, þ.e. erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtíma skuldum, nam um 473,2 milljörðum í lok janúar 2013 samanborið við 482,1 milljarða í desember 2012.

Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 58,7 milljarðar króna.