Gengi krónunnar lækkaði um 0,7% á árinu 2017 og velta á millibankamarkaði dróst saman um 42% frá fyrra ári. Seðlabankinn beitti inngripum á gjaldeyrismarkaði, einkum á fyrri hluta ársins, og dró þannig úr sveiflum í gengi krónunnar að því er kemur fram í frétt á vef bankans.

Hrein gjaldeyriskaup Seðlabankans á millibankamarkaði námu 70,3 ma.kr. Mikilvæg skref voru stigin við losun fjármagnshafta á árinu og voru veittar almennar undanþágur frá flestum takmörkunum á fjármagnsflutninga með breytingum á reglugerð í mars.

Sveiflur í gengi krónunnar urðu mun meiri en árin á undan og má rekja það til losunar fjármagnshafta og mismunandi væntinga um gengisþróun framan af ári. Þegar kom fram á haustið dró verulega úr gengissveiflum.

Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 130 milljarða á árinu vegna uppgreiðslna á erlendum lánum ríkissjóðs og kaupa á aflandskrónueignum. Stendur forðinn því í um 660 milljörðum og er enn stór í sögulegu samhengi og nam í árslok jafnvirði 27% af vergri landsframleiðslu.