Vergur gjaldeyrisforði Seðlabankans nam um 514,6 milljörðum króna í lok febrúar og lækkaði um 17,6 milljarða milli mánaða. Hreinn gjaldeyrisforði, þ.e. erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtíma skuldum, nam um 457,6 milljörðum króna í lok febrúar 2013 samanborið við 473,6 milljarða í lok janúar 2013 og minnkaði því um 16,0 milljarða.

Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 57 milljarðar miðað við í lok febrúar 2013 samanborið við 58,7 milljarða miðað við lok janúar 2013.