Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 364,2 milljörðum króna í lok janúar og lækkaði um 65,2 milljarða eða 15,2% í mánuðinum.

Erlend verðbréf, sem nema 50,3% af gjaldeyrisforðanum, lækkuðu um 28,6 milljarða króna í janúar og seðlar og innstæður lækkuðu um 37 milljarða.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.