Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 384,1 milljarði króna í lok júní og lækkaði um 42,1 milljarð í mánuðinum.

Erlend verðbréf hækkuðu um 7,7 milljarða króna í júní en seðlar og innstæður lækkuðu um 49,8 milljarða eða um tæp 25%.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.