Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga stendur fyrir hádegisverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 6. september 2011 sem ber yfirskriftina Gjaldeyrishöft - er hægt að losa þau?

Í kjölfar hrunsins var ákveðið að setja á gjaldeyrishöft til að vernda íslenska gjaldmiðilinn. Stjórnvöld hafa sett fram fimm ára áætlun sem miðar að því að losa þessi höft. Gjaldeyrishöftin hafa verið umdeild og halda margir því fram að þau séu beinlínis skaðleg fyrir íslenskt efnahagslíf. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga vill efla umræðu um hvort íslenska krónan þurfi stuðning gjaldeyrishafta í því efnahagsástandi sem nú ríkir og hvort ráðlegt sé að aflétta þeim fyrr en stjórnvöld stefna að.

Ræðumenn fundarins verða Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, Orri Hauksson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Páll Harðarson forstjóri NASDAQ OMX kauphallarinnar á Íslandi og Skúli Mogensen fjárfestir. Katrín Helga Hallgrímsdóttir, hdl. hjá BBA Legal lögmannsstofu stýrir fundi og fyrirspurnum úr sal. Fundurinn er öllum opinn. Hann hefst klukkan 12:00 og stendur til 13.30. Skráning fer fram á heimasíðu félagsins www.fvh.is.