Reglur um gjaldeyrismál hvetja fyrirtæki, sem uppfylla skilyrði um að meira en 80% tekna komi erlendis frá, til að flytja hluta starfsemi sinnar úr landi. Í reglunum segir meðal annars að fyrirtæki sem hafa yfir 80% af tekjum og 80% af gjöldum erlendis geta fengið undanþágu frá þeim.

Viðskiptaráð Íslands telur að af þeim sökum sé skýr hvati fyrir fyrirtæki, sem uppfylla til dæmis einungis skilyrði um að tekjur þeirra séu meira en 80% erlendis, að auka vægi erlends reksturs á kostnað hins innlenda. „ Þ.e. að kostnaður viðkomandi fyrirtækis færist í auknum mæli út fyrir landsteinanna þar til hlutfallið er umfram 80,“ segir í frétt á vefsíðu Viðskiptaráðs.

„Nú þegar hafa komið upp dæmi um fyrirtæki þar sem umfang erlends reksturs er að aukast og er viðkomandi fyrirtæki óðum að nálgast þau skilyrði sem sett eru af Seðlabankanum. Það er afar óheppilegt og óæskilegt í endurreisn hagkerfisins að uppbygging metnaðarfullra fyrirtækja sé á erlendri grundu þegar full þörf er á slíkri uppbyggingu hérlendis.“

Almenn sátt um höftin áhyggjuefni

Viðskiptaráð segir að það sé áhyggjuefni hversu almenn sátt virðist vera um höftin. Í þeim felist afturhvarf til fortíðar. „Það var ekki að ástæðulausu að horfið var frá þeim miklu gjaldeyrishöftum sem réðu ríkjum á seinni hluta síðustu aldar. Það fyrirkomulag gekk augljóslega ekki til lengri tíma og það sama á við nú. Viðvarandi gjaldeyrishöft eru ekki raunhæfur kostur.“

Takmarka uppbyggingu

Finnur Oddsson, framkvæmarstjóri Viðskiptaráðs, sagði á morgunverðarfundi ráðsins í síðustu viku að höftin hindri sprotafyrirtæki til vaxtar. Fyrirtæki á borð við CCP, Össur og Marel hefðu aldrei náð árangri án sóknar á erlenda markaði.

„Í þessu sambandi má ekki gleyma að flaggskip íslensks atvinnulífs í dag, fyrirtæki á borð við CCP, Össur og Marel, hefðu aldrei náð þeirri stöðu og styrk án sóknar á erlenda markaði. Það er ekki vænleg stefna til frambúðar að í höftum felist hindranir fyrir sprota atvinnulífsins í sömu vegferð. Að sama skapi er nær ómögulegt fyrri smærri fyrirtæki sem gætu tekið við keflinu af þeim sem eru að draga saman seglin hér á landi.“