Gjaldeyrisstaða þjóðarbúsins er betri en hún var á fyrri hluta árs 2013 ef frá er talin gjaldeyrisþörf vegna svonefndrar snjóhengju. Skuldatryggingarálag á erlend lán til ríkisins og fyriritækja gæti því lækkað og vaxtakjör batnað. Þetta er mat Friðriks Más Baldurssonar, prófessors við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, en Morgunblaðið ræðir við hann í dag.

Ástæðurnar eru tvíþættar. Annars vegar 50 milljarða fyrirframgreiðsla Landsbankans inn á 300 milljarða króna skuldabréf við gamla Landsbankann í erlendri mynt. Hins vegar þær fréttir að Orkuveita Reykjavíkur þurfi ekki að kaupa gjaldeyri á þessu ári til að mæta afborgunum.