Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur í tveimur útboðum. Annars vegar til fjárfestingar til langs tíma íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701 hins vegar. Í tilkynningu frá bankanum eru útboðin tvö liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta.

Seðlabankinn býðst til að kaupa allt að 100 milljónir evra samanlagt í útboðunum tveimur. Útboðsfjárhæðin er háð þeim fyrirvara að hún er sameiginleg báðum útboðum og kann því að taka endanlegt mið af því. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæðina.

Tilboðum skal skilað eigi síðar en 15. febrúar 2012. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna er að finna í útboðsskilmálum.

Markmið þessara aðgerða er að selja krónur fyrir gjaldeyri til aðila sem ákveðið hafa að fjárfesta í íslensku atvinnulífi eða í skuldabréfum ríkissjóðs sem verða í vörslu í 5 ár. Aðgerðin stuðlar þannig að því að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga með þeim hætti úr endurfjármögnunarþörf auk þess að laða til landsins erlendan gjaldeyri í langtímafjárfestingar og auðvelda þannig losun gjaldeyrishafta.