Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 1.089 milljörðum króna í júlí en var 347 milljarðar á sama tíma í fyrra. Hefur veltan því aukist um 214% ef bornir eru saman mánuðirnir.

Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri jókst um 52% í maí frá fyrri mánuði, en hún var 725 milljarðar króna í júní.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.