Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 549,5 milljörðum króna í febrúar sem er 95,8 milljarða króna minni velta en í janúar.

Velta Seðlabankans nam 1,6 milljörðum króna eða 0,3% af heildarveltu mánaðarins. Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri jókst um 198 milljarða króna frá sama tíma í fyrra eða um rúm 56%.

Aukin viðskipti með krónur

Velta á millibankamarkaði með íslenskar krónur í febrúar nam 99,0 milljörðum króna. Þetta er hækkun um 19,3 milljarða króna frá því í janúar.