Í október 2009 voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 78 fyrirtæki í október 2008, sem jafngildir tæplega 36% fjölgun milli ára að því er kemur fram í samantekt Hagstofunnar. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 24 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 18 gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum.

Fyrstu 10 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 747 en fyrstu tíu mánuði ársins 2008 voru 600 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir 24,5% aukningu milli ára.