Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í dag beiðni stjórnar Stoða (áður FL Group) um framlengingu heimildar til greiðslustöðvunar til 6. apríl 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stoðum en líkt og Viðskiptablaðið hefur greint frá höfðu stærstu lánardrottnar félagsins áður lýst yfir stuðningi við framlengingu greiðslustöðvunarinnar.

Í tilkynningunni kemur fram að stjórnendur Stoða og aðstoðarmaður félagsins á greiðslustöðvunartíma héldu kynningarfund fyrir lánardrottna félagsins þann 16. janúar sl.

Á fundinum var kynnt bráðabirgðamat á fjárhagsstöðu Stoða og gerð var grein fyrir framvindu mála sl. 3 mánuði.

„Verkefni stjórnenda og stjórnar Stoða síðustu mánuði hafa alfarið snúist um að verja hagsmuni lánardrottna eftir fremsta megni,“ segir í tilkynningunni.

„Unnið hefur verið að sölu ákveðinna óskráðra eigna á viðunandi verði en án árangurs. Í öðrum tilfellum hefur verið komið í veg fyrir sölu skráðra eigna á brunaútsölu. Mikil vinna hefur farið í aðstoð við félög sem eru að stórum hluta í eigu Stoða og hafa lent í rekstrarvanda vegna slæmrar stöðu Stoða og íslensks efnahagslífs.“

Margir lánadrottnar Stoða sjálfir í greiðslustöðvun eða gjaldþrotameðferð

Þá kemur fram að stjórnendur Stoða hafa átt fjölda funda með lánardrottnum en það hefur torveldað framgang að margir lánardrottnanna eru sjálfir í greiðslustöðvun eða gjaldþrotameðferð.

„Á undanförnum mánuðum hefur starfssemi Stoða verið takmörkuð, skrifstofu í London lokað og öllu starfsfólki sagt upp störfum. Síðustu vikur hafa 8 starfsmenn á uppsagnarfresti verið að störfum fyrir félagið,“ segir í tilkynningunni.

Þá er einnig greint frá því að eignasafn Stoða hefur orðið fyrir miklum áföllum síðustu mánuðina.

„Áður fékk félagið mikið högg þegar félagið missti stærstu eign sína í Glitni í haust og hluthafar þar með allt sitt hlutafé,“ segir í tilkynningunni.

„Eignir félagins hafa nú lækkað um u.þ.b. 200 milljarða síðastliðið hálft ár. Miðað við bráðabirgðamat á verðmæti eigna félagsins um sl. áramót er eigið fé Stoða neikvætt um 111 milljarða króna og því ljóst að gjaldþrot blasir við félaginu ef ekkert er aðhafst.“

Rekstur félaga í eigu Stoða í uppnámi ef af gjaldþroti verður

Þá kemur fram að á fundinum með lánardrottnum þann 16. janúar sl. lýstu stjórnendur Stoða þeirri skoðun sinni að gjaldþrot þjónaði ekki hagsmunum lánardrottna.

„Við gjaldþrot Stoða myndi rekstur félaga í eigu Stoða komast í uppnám og lægra verð myndi fást fyrir eignir félagsins. Stjórnendur Stoða hafa kynnt lánardrottnum drög að áætlun um endurskipulagningu fjárhags og reksturs Stoða. Áætlunin miðast við að hlutafé núverandi hluthafa verði afskrifað að öllu leyti og lánardrottnar breyti hluta skulda í hlutafé. Framlenging greiðslustöðvunarinnar gefur stjórnendum Stoða svigrúm til að vinna frekar að endurskipulagningu félagsins í nánu samstarfi við lánardrottna,“ segir í tilkynningu Stoða.