Í desember 2009 voru 80 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 75 fyrirtæki í desember 2008, sem jafngildir tæplega 7% fjölgun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 26 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 15 gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Árið 2009 er heildarfjöldi gjaldþrota því 906 samanborið við 748 gjaldþrot árið 2008 sem jafngildir rúmlega 21% aukningu milli ára.