© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Gjaldtaka inn á Geysissvæðið hefst í dag og mun kosta 600 krónur að fara inn á svæðið. Þetta kemur fram í tilkynningu fá eigendum Geysisvæðisins, sem RÚV vísaði til í hádegisfréttum.

Íslenska ríkið, sem á hlut í svæðinu, fór fram á það við sýslumann að lögbann yrði sett við innheimtu gjalds. Þeirri kröfu var hafnað í fyrradag. Því var tilkynnt í morgun að íslenska ríkið myndi stefna landeigendum fyrir dómstóla.