Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði, frá febrúar 2014 til janúar 2015, hefur fjölgað um 4% samanborið við tólf mánuði þar á undan. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Þar kemur fram að alls hafi 2.010 ný félög verið skráð á tímabilinu. Fjölgun nýskráninga sé mest í flokknum „Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi“ eða 36% á síðustu tólf mánuðum.

Þá hafa gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði, frá febrúar 2014 til janúar 2015, dregist saman um 12% samanborið við tólf mánuði þar á undan.

Alls voru 811 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum fasteignaviðskipti hefur fækkað mest, eða um 33% á síðustu 12 mánuðum.