TF-HOT ehf., rekstrarfélag Base Hotel á Ásbrú var tekið til gjaldþrotaskipta 24. janúar síðastliðinn, daginn eftir að Viðskiptablaðið sagði frá lokun hótelsins . Viðskiptablaðið greindi einnig frá því að félagið TF KEF ehf., í eigu Skúla, sem á fasteign hótelsins ynni að því að selja íbúðir á Ásbrú .

Þyrí Steingrímsdóttir hrl. var skipaður skiptastjóri búsins, og er skorað á kröfuhafa að lýsa kröfum sínum innan tveggja mánaða frá birtingu innköllunarinnar, sem auglýst var í dag, 3. febrúar.