Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði frá ágúst 2013 til júlí 2014 drógust saman um 22% samanborið við tólf mánuði þar á undan, samkvæmt frétt Hagstofunnar .

Á tímabilinu voru 845 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Flest gjaldþrot voru í heild- og smásöluverslun, viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, og í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð.

Nýskráningum einkahlutafélaga hefur jafnframt fjölgað síðustu tólf mánuði um 7% samanborið við tólf mánuði þar á undan. Alls voru 1.994 félög skráð á tímabilinu, en flestar nýskráningar voru í fjármála- og vátryggingastarfsemi eða 319 talsins.