Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá apríl 2014 til mars 2015, hefur fjölgað um 8% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Alls voru 2.102 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum „Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi“, 58% á síðustu 12 mánuðum.

Þá hafa gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá apríl 2014 til mars 2015, dregist saman um 15% samanborið við 12 mánuði þar á undan.

Alls voru 786 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum „Flutningar og geymsla“ hefur fækkað mest, eða um 42% á síðustu 12 mánuðum.