Á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru alls 197 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta, þar af 71 í janúar 67 í febrúar og 59 í mars. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja á fyrsta ársfjórðungi 2017 fækkaði um 38% frá fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands .

Ef litið er til ólíkra atvinnugreina, voru 51 gjaldþrot í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og fækkaði þeim frá fyrsta ársfjórðungi 2016 um 16% og í heild- og smásöluverslum og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum voru 34 gjaldþrot og fækkaði þeim úr 77 frá sama tímabili í fyrra eða um 56%.

Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá apríl 2016 til mars 2017, fjölgaði um 33% í samanburði við 12 mánuði þar á undan, en alls voru 907 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 683 á fyrra tímabili.

Nýskráningum fjölgaði um 8%

Nýskráningar einkahlutafélaga á fyrsta fjórðungi ársins 2017 voru 771, þar af 242 í janúar, 257 í febrúar og 272 í mars. Nýskráningum einkahlutafélaga fjölgaði um 8% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samanborið við fyrsta ársfjórðung 2016 þegar þær voru 712.

Ef litið er til mismunandi atvinnugreina, sér maður að flestar nýskráningar voru í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og fasteignaviðskiptum.