Gjaldþrotum einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði hefur fækkað um 22% samanborið við þá tólf mánuði sem þar voru á undan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni . Alls voru 845 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Flest gjaldþrot voru í heild- og smásöluverslun, viðgerðum á vélknúnum ökutækjum og í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð. Í hvorum flokki voru 156 gjaldþrot.

Gjaldþrot fyrirtækja ágúst 2013 - ágúst 2014
Gjaldþrot fyrirtækja ágúst 2013 - ágúst 2014
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þá kemur einnig fram að nýskráningum einkahlutafélaga hefur fjölgað um 7% á sama tímabili. Allls voru 1.994 félög skráð á tímabilinu en flestar nýskráningar voru í fjármála og vátryggingastarfsemi, eða 319 talsins.