Króna
Króna
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Í júní 2011 voru skráð 145 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 150 einkahlutafélög í júní 2010, sem jafngildir um 3% fækkun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 841 fyrstu 6 mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um rúm 6% frá sama tímabili árið 2010 þegar 899 ný einkahlutafélög voru skráð af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Í júní 2011 voru 137 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 99 fyrirtæki í júní 2010, sem jafngildir rúmlega 38% fjölgun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu 6 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 839 sem er um 51% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 555 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.