Króna
Króna
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Í júlí 2011 voru skráð 120 ný einkahlutafélög samanborið við 103 einkahlutafélög í júlí 2010, sem jafngildir 16,5% fjölgun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í fasteignaviðskipti og heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 961 fyrstu 7 mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um rúm 4% frá sama tímabili árið 2010 þegar 1002 ný einkahlutafélög voru skráð af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Í júlí 2011 voru 97 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 49 fyrirtæki í júlí 2010, sem jafngildir tæplega 98% fjölgun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í fasteignaviðskiptum. Fyrstu sjö mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 938 sem er um 55% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 604 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.