Fasteignamarkaður - Myndir
Fasteignamarkaður - Myndir
© BIG (VB MYND/BIG)
Í maí 2011 voru skráð 108 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 161 einkahlutafélög í maí 2010, sem jafngildir um 33% fækkun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í Fasteignaviðskipti. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 696 fyrstu 5 mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um 7% frá sama tímabili árið 2010 þegar 749 ný einkahlutafélög voru skráð, samkvæmt frétt Hagstofunnar .

Í maí 2011 voru 172 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 96 fyrirtæki í maí 2010, sem jafngildir um 79% fjölgun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 5 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 699 sem er um 53% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 456 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.