Guðmundur Kristjánsson í Brimi hefur fest kaup á Fjölnisvegi 11, sem áður var í eigu Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra FL Group. Þetta kemur fram á vefnum MBL.is.

Húsið var auglýst fyrir þremur vikum og uppsett verð var 190 milljónir króna. Félag Hannesar sem var skráð fyrir húsinu heitir Fjölnisvegur 9. Landsbankinn tók það yfir fyrir tveimur árum vegna skulda Hannesar.

Samkvæmt fréttinni á MBL.is er þetta ekki í fyrsta skipti sem Guðmundur festir kaup á húsinu því hann átti það á árunum 2002-2005 en húsið keypti hann af Boga Pálssyni sem oft er kenndur við Toyota.