Í tengslum við nýtingu starfsmanna Glitnis banka hf. á kaupréttum í bankanum hefur Glitnir banki hf. í dag keypt 500 þúsund hluti í Glitni á genginu 20,95, þ.e. miðað við lokagengi síðasta viðskiptadags, og selt til kaupréttarhafa á genginu 15,5.

Um er að ræða kaupréttarsamninga sem gerðir voru við lykilstarfsmenn á árinu 2005.  Viðskiptin hafa ekki áhrif á fjölda eigin hluta Glitnis.