Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis hefur fjármagnað kaup Öflunar, sem á og rekur Apple-verslanir á Norðurlöndum, á 89,58% í norska fyrirtækinu Office Line, segir í fréttatilkynningu frá Glitni. Viðskiptablaðið greindi frá kaupunum í síðasta mánuði en Öflun hefur gert öðrum hluthöfum yfirtökutilboð og stefnir á að eignast félagið að fullu.

Office Line rekur Apple-verslanir í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi og hefur haft þar umtalsverða markaðshlutdeild. Velta félagsins á árinu 2005 var um 425 milljónir norskar krónur og rekstrarhagnaður var um 16 milljónir norskar krónur. Félagið er skráð í Kauphöllinni í Ósló.

Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis sá um ráðgjöf og annaðist fjármögnun við kaupin. Þetta er fyrsta samstarfsverkefni fyrirtækjaráðgjafar Glitnis í Reykjavík og Glitnir Securities (áður Norse Securites).

Stefnt er að því að sameina Office Line við Öflun og að afskrá félagið úr norsku kauphöllinni. Öflun rekur þá þrettán Apple-verslanir á Norðurlöndum, meðal annars í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi og Helsinki.

Gert er ráð fyrir að opna þrjár nýjar verslanir í vor og þá er stefnt að auka sölu og þjónustu til fyrirtækja. Eftir sameininguna er áætlað að velta Öflunar verði um sjö milljarðar íslenskar krónur á ári. Starfsmenn fyrirtækisins eru um tvö hundruð, þar af um tuttugu á Íslandi. Yfirstjórn félagsins mun hafa aðsetur á Íslandi.