Glitnir hefur fjármagnað skuldsetta yfirtöku á finnska leiktækjafyrirtækinu Pelika net Oy sem starfrækir yfir 6.000 leiktæki og glymbox á yfir 3.000 stöðum í Finnlandi og er leiðandi á sínu sviði, segir í tilkynningu.

Kaupendur eru BG Kapital Partners, breskt eignarhaldsfélag sem sérhæfir sig í kaupum á óskráðum félögum, ásamt stjórnendateymi Pelika net Oy.

Seljandi er hópur finnskra fagfjárfesta. Fjárfestinga- og alþjóðasvið Glitnis-skuldsett fjármögnun, skipulagði og fjármagnaði yfirtökuna með hefðbundinni fjármögnun og millilagsfjármögnun en Glitnir mun einnig eiga áskriftarrrétt að hlutafé í félaginu.